fbpx

VOLG – Nýtt Tímarit

VOLG er nýtt tímarit sem er væntanlegt á allra næstu dögum. Inná Facebook síðu blaðsins kemur fram að blaðið sé fyrir konur á öllum aldri og verður dreift frítt. Í Volg verður tíska, mannlíf, listir, fólk, stjórnmál og heimsmál. Um leið og ég sá líka nöfnin sem standa á bakvið blaðið varð ég samstundis spennt! Ristjórinn er Hildur Sif Kristborgardóttir, Ásta Kristjánsdóttir tekur ljósmyndirnar og Sara María Júlíusdóttir sér um að stílisera.

Hér sjáið þið nokkrar myndir sem voru teknar bakvið tjöldin við gerð fyrsta blaðsins. Mér finnst svo sannarlega kærkomið að það sé að koma nýtt tímarit sem er stílað inná þennan markað og ég hlakka svo sannarlega til að fá að lesa það. Ég hvet ykkur til að smella like á facebook hjá skvísunum, þar getið þið til dæmis aflað ykkur betri upplýsinga og skoðað fleiri myndir. Svo verður án efa möst að fylgjast með heimasíðunni þeirra þegar hún opnar.

EH

Seiðandi Haust hjá Oroblu

Skrifa Innlegg