fbpx

Seiðandi Haust hjá Oroblu

Í nýjasta tölublaði Nude Magazine birtist ótrúlega flottur myndaþáttur sem stílistinn Díana Bjarnadóttir og ljósmyndarinn Aldís Pálsdóttir unnu saman til að sýna haustlínuna frá Oroblu. Fyrirstæturnar eru Magdalena hjá Elite og Sóley Kirstjánsdóttir og Elma Karen með vörum frá Maybelline. Mig langaði nánast að fara að gráta þegar ég sá fallegu myndirnar því ég var svo heppin að fá að farða fyrir síðustu myndatöku sem Díana og Aldís gerðu saman en ég ákvað að vera skynsöm ólétt kona og segja pass – en förðunin hjá Elmu finnst mér glæsileg!

Hér er uppáhalds myndin mín úr myndatökunni – finnst karakterinn hennar Sóleyjar skína svo vel í gegn:)
Ég mæli með að þið kíkið á myndaþáttinn í heild sinni – íslenska náttúran fær svo sannarlega að spila stórt hlutverk á myndunum.

EH

Carine Roitfeld Fyrir MAC

Skrifa Innlegg

2 Skilaboð

  1. .

    16. October 2012

    seiðandi** :)