fbpx

Carine Roitfeld Fyrir MAC

Það er greinilega allt í gangi hjá MAC þessa dagana því ég var að rekast á það núna að engin önnur en tískudrottningin Carine Roitfeld hafi verið að hanna makeup línu fyrir merkið. Carine Roitfeld hefur svo sannarlega ekki verið að slaka neitt á síðan hún hætti hjá franska Vogue en tímaritið hennar CR kom út á dögunum – veit samt ekki með hvort það sé tímarit því það er eiginlega bara bók! Hvort sem er þá er það/hún komin á innkaupalistann minn. Hér sjáið þið vörurnar sem eru í boði í línunni sem einkennist af stíl – hún Carine veit hvað er flott, hún veit hvað hún vill og hvað verður vinsælt í makeup-i núna í haust.

Ég er sérstaklega skotin í merkingunum á vörunum það er greinilegt að Carine ætlar að byggja upp veldi í kringum stafina sína CR.

Virkilega flott og spennandi – nú er bara að vona eins og áður að línan komi hingað. Augnskuggapalletturnar finnst mér mjög girnilegar;)

UPDATE – Marilyn línan mætir í MAC núna á næstunni;)

EH

Maison Martin Margiela fyrir H&M - Lookbook

Skrifa Innlegg

2 Skilaboð

  1. Hildur

    17. October 2012

    Mig minnir að ég hafi séð á íslensku MAC Facebook síðunni að þessi lína kemur ekki hingað. Hef líka bara fundið lélega dóma um hana á netinu, allavega um palletturnar og varalitina.