Alltof lengi er ég búin að ætla að gera melónukarp fyrir Tinna Snæ. Ég ákvað að skella því í gang í gær í þessu dásamlega veðri. Ég átti hálfa melónu inní ískáp sem ég tók utan af, týndi steinana úr henni, skar hana í nokkra bita og setti inní fyrsti. Ég hafði ekki miklar áhyggjur af því að Tinna fyndist þetta ekki gott þar sem ég er handviss um að hann geti klárað heila Vatnsmelónu án þess blikka.
Vatnsmelónubitarnir voru í nokkra tíma inní fyrsti og svo skellti ég þeim bara í matvinnsluvélina og lét hana mauka klakana niður. Það verður samt að setja smá vatn með bitunum svo krapið þiðni aðeins:)
Tinna fannst þetta svakalega gott og bað bara um meira og meira – ég ætla að reyna að eiga svona bita inní frysti í allt sumar. Ég sé fyrir mér að það sé líka kannski gott að prófa að setja fleiri ávexti útí sem maukast vel með. Ein vinkona mín var svo að mæla með því að ég maukaði banana bætti útí 1 dl af mjólk og smá vanilludropum og setti í frysti – sagði að þetta bragðaðist eins og rjómaís. Því miður er ég sjálf með banana ofnæmi en mig langar að prófa að gefa Tinna Snæ svona við fyrsta tækifæri.
Myndarskapurinn var í hámarki en ég skellti líka í mína uppáhalds köku en uppskriftina finnið þið hjá henni Evu Laufey – Syndsamlega góð rice krispies kaka. Ég breytti uppsrkriftinni lítillega en ég setti jarðaber saman við rjómann og aðeins ofan á hann og í staðin fyrir Góu karmellukúlur eru þetta Bingókúlur – mæli með að þið prófið það sérstaklega ef þið eruð lakkrísaðdáendur eins og ég :)
Helgin mín var ein sú besta sem ég hef átt í langan tíma en ég eyddi henni eins mikið og ég gat með strákunum mínum – svoleiðis á það að vera ég vona að ég muni eiga fleiri svona helgar á næstunni:)
EH
Skrifa Innlegg