Við Trendnet fólkið reynum að hittast reglulega og eyða smá tíma í að kjafta, ræða um síðurnar okkar, lífið og að sjálfsögðu tísku! Í dag hittumst við sem komumst á staðnum Lemon á Suðurlandsbraut og hún Theodóra missti sig aðeins á myndavéllinni og tók þessar skemmtilegu myndir sem líta ekkert út eins og auglýsing – neinei;)Sumir fengu nýpressaðan djús en aðrir bara mömmumjólk <3
Ég fékk mér safa sem var m.a. með avókadó og Parmella samloku með parmaskinku, mozzarella og tómmötum – mjöög gott kombó!
EH
Skrifa Innlegg