fbpx

Thriftwares

Þá hef ég loks ákveðið að láta undan þrýstingi og segja frá minni uppáhalds vintage eBay verslun. Þið finnið hana HÉR.

Fyrirkomulagið á síðunni er þannig að flestar flíkurnar eru á uppboði í 7 daga og er upphafboð yfirleitt um $10 – svo bætist við sendingarkostnaður sem er oftast $15 en hærri á þyngri flíkum eins og þykkum yfirhöfnum og peysum. Hér fyrir neðan eru myndir af flíkum sem eru fáanlegar þessa stundina á síðunni:)

Ég hef ekki tölu á því lengur hversu mikið af flíkum ég hef keypt mér í gegnum þessa síðu en þær eru ansi margar og sumar hverjar hef ég nú þegar selt frá mér í Kolaportinu. Ein af uppáhalds flíkunum mínum sem ég fékk í gegnum síðuna er pallíettukjóllinn minn sem ég klæddist eitt sinn á áramótunum – hann mun seint fara úr skápnum mínum ;)Ég elska þessa verslun og ég mun seint hætta að kaupa mér flíkur frá henni. Er reyndar í smá fatainnkaupabyndindi en það er bara hollt – reyna að nota eitthvað fötin sem ég á nú þegar inní skáp ;)

EH

Krem sem virkar & Mömmuleikfimi

Skrifa Innlegg

10 Skilaboð

  1. Berglind V

    5. April 2013

    fallegur pallíettukjóllin, mynda halda fast í hann!!

  2. Sara

    5. April 2013

    Finnst þú ótrúlega fín í þessum kjól! Skemmtilegast að eiga sérstakar flíkur sem enginn annar á :-)

  3. Sigrún

    5. April 2013

    Snilld!! Takk fyrir að benda á hana, er alltaf að leita af nýjum búðum á netinu!

  4. Sigrún

    6. April 2013

    Hehe, Thriftwares er líka ein af mínum uppáhalds. Getur gert virkilega góð kaup þar. :)

  5. Unnur

    6. April 2013

    ÓMÆGAT! Líf mitt breyttist bara til hins ennþá betra eftir þennan post. Takk fyrir elsku Erna! P.S – Kjólinn þinn er sá allra sjúkasti!