Já það er mér sannur heiður að fá að vera fyrst með fréttirnar – eins og hefur nú átt við um mikið af fréttum af Real Techniques burstunum. En nýjungarnar eru nú komnar til landsins og nú þegar komnar í nokkrar verslanir en skvísurnar hjá RT eru á fullu að koma þeim í verslanir.
Ég er búin að prófa núna alla burstana – þeir eru allir snilld. Ef þið eruð sannir aðdáendur Real Techniques burstanna þá er nauðsynlegt að eiga þá alla. Ef þið eruð búnar að bíða spenntar í einhvern tíma, flettið þá neðst í þessa færslu til að sjá hvar þeir eru nú þegar komnir í sölu og hvernig þið getið fengið 25% afslátt af þeim í dag….!
Hér sjáið þið þessa glænýju bursta – Retractable Bronzer Brush – Retractable Kabuki Brush – Retractable Lip Brush – Silicon Eyeliner Brush…
Auk þessara bursta er nú komið fullt vöruúrval frá Real Techniques á Íslandi en nú er Travel Essentials burstasettið loksins fáanlegt en það inniheldur þrjá mismunandi bursta – einn af hverjum lit. Miracle Complexion Sponge er líka mættur á svæðið – ég er ekki mikill svamp aðdáandi en þessi er algjör snilld. Hann er svo þéttur og mjúkur og gefur bara fullkomna áferð. Ég hef líka prófa að belyta hann smá svo hann sé rakur þegar ég ber farða á húðina með honum. Ég held ég hafi aldrei náð jafn fallegri áferð á húðina mína og þegar ég geri það. Allt í einu finnst mér svampur ómissandi – það er eitthvað sem ég átti ekki von á.En að sölustaðnum og afslættinum… Kíkið við í VILA í Smáralind í dag – allir sem versla þar fá nefninlega flyer sem gildir sem 25% afsláttur í Lyfju Smáralind sem er einn af fáum útsölustöðum sem er kominn með þessar nýjungar. Afslátturinn gildir af öllum vörum frá Real Techniques í dag eða á meðan birgðir endast.
Burstarnir eru nú ekki dýrir fyrir en með svona góðum afslætti þá eru þeir á ennþá betra verði!
Ég verð inní VILA á morgun milli 14 – 18 endilega kíkið á mig – ég get svarað öllum ykkar spurningum um burstana og hjálpað ykkur að velja falleg föt.
Sjáumst í Smáralind!
EH
Skrifa Innlegg