fbpx

Taylor Tomasi Hill

Fræga FólkiðInnblásturStíll

Innblásturinn fyrir rauða hárið sem mig dreymir um þessa dagana kemur að mestu leyti frá þessari skvísu, Taylor Tomasi Hill. Taylor vakti fyrst athygli sem stjórnandi fylgihluta – accessories director – hjá bandaríska Marie Claire en hún færði sig síðan yfir til Moda Operandi þar sem hún vinnur hjá íslensku ofurskvísunni og buisnesskonunni Áslaugu Magnúsdóttur. Þar gegnir hún starfi listræns stjórnanda – artistic director.

Taylor er ekki bara með flott hár heldur, fatastíllinn hennar er ekki síðri eins og þið sjáið hér….

Hún er æði – finnst ykkur ekki?

Annars er planið í kvöld að reyna að ná að skoða Alexander Wang fyrir háttinn og stútfylla litla manninn af mjólk svo ég nái kannski að sofa í alla nótt. Hann er í smá vaxtarkipp svo núna vaknar hann einu sinni yfir nóttina – ég er ekki að kvarta ég lofa:)

EH

Trendstelpur í Hörpu

Skrifa Innlegg

4 Skilaboð

  1. Þórhildur Þorkels

    9. February 2013

    Efsta átfittið er FULLKOMIÐ í mínum huga!

  2. Sunna

    9. February 2013

    Hún er óþolandi flott, það er bara þannig.

  3. emilia

    10. February 2013

    Snillingur hún er frábær!