Þarf maður ekki aðeins að fríska uppá húðlitinn fyrir hátíðirnar? Fyrir sjálfa mig þá finnst mér það nauðsynlegt. Mér datt í hug að ef til vill væru fleiri í sömu sporum og ég með það og þess vegna datt mér í hug að gefa vinsælustu vöruna frá St. Tropez í glaðning í dag. Ég hef dáldið mikið skrifað um þessar vörur þið finnið umfjallanirnar HÉR. Merkið hefur svo sannarlega slegið í gegn hér á Íslandi og er ábyggilega mest selda sjálfbrúnkuvörumerki á landinu. Það sem mér finnst best við vörurnar er að það er engin lykt af því sem er mikill kostur að mínu mati.
Ég ætla að gefa einum heppnum lesanda vinsælustu vöruna frá merkinu, sjálfbrúnkufroðuna. Hún er rosalega létt í sér og það er mjög þæginlegt að bera hana á og fá jafna áferð. Að sjálfsögðu er nauðsynlegt að skrúbba húðina og næra hana svo vel með rakakremi áður en sjálfbrúnkan er sett á hana.
Það eina sem þið þurfið að gera eins og áður til að eiga kost á því að eignast þessa vöru er að setja like á þessa færslu – ef þið eruð ekki enn að fylgja mér á Facebook þá smellið þið á like á síðunni minni HÉR – og skiljið svo eftir smá athugasemd við þessa færslu. Ég dreg út einn heppinn lesanda í fyrramálið um leið og ég segi frá næsta glaðning sem ég ætla að gefa ;)
Svo eru það lesendurnir sem voru dregnir út og fá glaðninginn frá Maybelline, þegar ég dró voru komnar 154 athugasemdir. Þær sem fá glaðninginn eru…
Endilega sendið mér póst á ernahrund(hjá)trendnet.is með upplýsingum um ykkur svo ég geti sent ykkur glaðninginn :):)
Nú er það bara að næla sér í eitt stk frábært sjálfbrúnkukrem!
EH
Skrifa Innlegg