fbpx

Slaufur útgáfupartý

Ég Mæli MeðLífið MittTinni & Tumi

Eftir alltor löng og ömurleg veikindi reif ég mig framúr, skellti á mig farða og varalit til að fela ömurlegu líðanina og fór í útgáfupartý hjá snillingnum mágkonu minni. Hún Rannveig mín var að gefa út sína fyrstu bók – handavinnubók sem inniheldur fullt af æðislegum uppskriftum fyrir prjónaðar slaufur. Rannveig er algjör snillingur og bókin er alveg sérstaklega flott hjá henni og hér er án efa á ferðinni ein flottasta handavinnubókin og þessi er fullkomin í alla jólapakka.

Þar að auki inniheldur bókin þrjár myndir af Tinna Snæ og svo fær nú litli bóðir minn líka sitt pláss í bókinni.

Mig langaði að deila með ykkur nokkrum myndum sem ég tók í útgáfuboðinu sem var haldið á Te & Kaffi í Austurstræti í gær.

slaufur15

Kominn í partýdressið – að sjálfsögðu með slaufu eftir Rannveigu og hann tók með sér bók – en ekki hvað þetta var nú bókapartý.

slaufur10 slaufur9

Það er möst að knúsa rithöfundinn aðeins***

slaufur14

Fallegar slaufur – það eru uppskriftir fyrir allar þessar flottu slaufur í bókinni.

slaufur12

Afi og Tinni Snær báðir með slaufur eftir Rannveigu en ekki hvað :)

slaufur7

Bókin flotta – forsíðan og letrið alveg fullkomið!

slaufur3

Tinni var hissa að finna sjálfan sig í bókinni – þarna er hann með vinkonu sinni og nöfnu, Tinnu :)

slaufur11

Langa og Langi með Tinna sinn.

slaufur6

Rannveig áritar eintök af bókinni sem seldist upp í boðinu – það er þó auðvitað komin fleiri eintök núna:)

slaufur slaufur13 slaufur8

Við mæðginin með framtíðar metsöluhöfundi.

slaufur5

Tinni Snær og afi glugga í bók.

slaufur4

Það var mjög erfitt að ná mynd af þessum saman – Maggi Valur bróðir minn og Tinni Snær.

slaufur2

Bókin er sumsé komin í búðir og ég mæli með að þið flettið í gegnum hana – hún er æðisleg og ég hlakka til að stilla okkar eintaki upp í bókahillunni.

Til hamingju Rannveig – þetta er æðislega flott hjá þér :)

EH

Hugsaðu vel um þig og þína

Skrifa Innlegg

4 Skilaboð

  1. Fanney

    12. October 2014

    Mikið líturu vel út á þessum myndum Erna! Þú geislar alveg :) má ég forvitnast um það hvað þú ert með á vörunum? Rosa fallegur litur.

    • Reykjavík Fashion Journal

      12. October 2014

      Takk kærlega*** En ég er með Dior Rouge Baume – nýjir æðislegir næringarríkir varalitir frá Dior! Meira á blogginu síðar ;)

  2. Íris Ósk

    15. October 2014

    Veistu hvað varalit Rannveig er með?