fbpx

Hugsaðu vel um þig og þína

Ég Mæli MeðLífið MittShop

Ég veit ekki með ykkur en ég er þessi týpa sem hefur alltaf verið frekar stolt af því að fara útí búð og kaupa dömubindi eða túrtappa og er dugleg að flagga því. Ég veit ekki alveg afhverju en ég held það sé af því mörgum finnst þetta feimnismál – ég skil ekki afhverju í ósköpunum því þetta er það eðlilegasta í heimi og þá verð ég auðvitað að ögra aðeins. Ég á það meirað segja til að setja pakkningarnar bara í glæran poka og rölta svo upp Laugaveginn aftur í vinnuna, sveiflandi pokanum með mér (ég vinn þar og rölti bara niður í apótek þegar mig vantar áfyllingar).

Ef þið eruð á túr núna – já eða vantar bara áfyllingar fyrir næsta skipti þá ættuð þið að nota tækifærið og splæsa í pakka af Natracare dömubindum – já og ég mana ykkur til að flagga því vel hvaða vöru þið séuð að kaupa því að fara á blæðingar er það eðlilegasta í heimi og ætti alls ekki að vera feimnismál. .Núna er nefninlega búið að fela þónokkur gjafabréf fyrir NIKE FREE skó að eigin vali í random pakkningum af Natracare!

natracare

Ef þið pælið mikið í að velja réttu dömubindin þá eru ótalmargir kostir við að velja Natracare. Bindin eru framleidd úr náttúrulegum efnum, náttúrulegum bómul, þau innihalda ekki klór og svo eru þau líka vistvæn – svo ef þið lendið á Nike gjafabréfi þá ætti það eiginlega bara að vera bónus!

Ég man reyndar eftir því að þegar ég byrjaði að fá blæðingar fyrir rúmlega áratug síðan – þá voru þessi dömubindi allt öðru vísi en þau eru í dag. Þau voru miklu stærri og þykkari en núna eru þau bara ótrúlega fín. Það er líka flott vöruúrval hjá merkinu bæðö dömubindi og túrtappar og svo eru frábærar þurrkur – sem er must að vera með í veskinu þegar sá tími mánaðarins er. Svo eru líka til vörur fyrir nýbakaðar mæður – sérstaklega rakadræg bindi fyrir eftir fæðinguna og brjóstapúðar.

Nælið ykkur í Natracare og ég krosslegg fingur fyrir ykkur allar og vona að gjafabréf fyrir NIKE FREE skópar leynist í ykkar kassa. Hér fyrir ofan sjáið þið mína nýjustu – þessir áttu að koma mér af stað í ræktinni en það hefur ekki enn gengið eftir. Svo í staðin fylgja þeir mér í vinnuna :D

EH

How to: Skyggingartrio frá Sleek

Skrifa Innlegg

7 Skilaboð

  1. Lára

    10. October 2014

    Fékkstu borgað fyrir að setja inn þessa færslu? Þá í peningum eða í skóm? Mér finnst að allt svoleiðis eigi að koma fram á blogginu, annað er ósanngjarnt fyrir lesendur. En annars hef ég litla trú á að þetta komment mitt verði birt.

    • Reykjavík Fashion Journal

      10. October 2014

      Hæ Lára – nei ég fékk ekkert fyrir þessa færslu – hjartanlega sammála því að allt svoleiðis eigi að koma fram í skrifum sem er einmitt regla hjá mér:)
      Bestu kveðjur,
      EH

      • Fanney

        10. October 2014

        Ertu s.s bara vön að vera með Nike skó upp á hillu hjá þér?

        • Reykjavík Fashion Journal

          10. October 2014

          haha nei:) – ég stillti þeim þarna upp viljandi (mig vantaði eitthvað skemmtilegt myndefni)- var að byrja á blæðingum sem skýrir líka að boxið af dömubindunum er opið, því miður fékk ég ekkert gjafabréf samt – ég hefði kannski átt að merkja að myndin væri uppstillt ;)

          Mér fannst þetta bara skemmtilegur leikur sem mig langaði að segja frá og tækfiæri til að líka kannski aðeins opna fyrir það að það að fara á blæðingar er eðlilegasti hlutur í heimi og ekkert til að vera í feluleik með :)

          • Rut

            13. October 2014

            Mér finnst stundum vanta like takka hér inní kommentakerfinu :)
            Þá myndi ég like-a svörin þín, finnst þú alltaf vera svo hress og flott í tilsvörum :)

  2. karitas

    10. October 2014

    er það í einhverjum sérstökum verslunum eða bara alls staðar sem þau fást? og fást þessi á öllum helstu stöðum?
    xx

  3. Inga

    10. October 2014

    Ég mæli með því að þú kynnir þér álfabikarinn. Þó það sé gaman að kaupa sér dömubindi þá fer bikarinn margfalt betur með náttúruna og margborgar sig til langs tíma litið.