fbpx

Síðdegisbollinn…

Annað DressLífið MittShop

… er í miklu uppáhaldi hjá mér og nauðsynlegur partur af vinnudeginum mínum. Þegar þessar myndir voru teknar naut ég bollans í Fógetagarðinum – fyrir aftan Te & Kaffi í Aðalstræti.

Skyrta: Hjálpræðisherinn
Leggings: AndreA Boutique
Skór: Nike #trendnike

Ég er búin að ofnota þessar þæginlegu leggings síðan ég fékk þær fyrir 2 vikum síðan. Þær eru mjúkar og góðar með breiðri teygju í mittinu. En það besta við þær er að úr fjarska líta þær út fyrir að vera gallabuxur en þetta eru í raun leggings á fáránlega góðu verði aðeins 2900kr!

En hvað mig langar í svona fallegt veður í vikunni – helst á fimmtudaginn fyrir myndatökuna mína….

EH

Í leit að innblæstri

Skrifa Innlegg

Skilaboð 1

  1. Sirra

    26. August 2013

    Mér finnst þessar leggings svo flottar!