fbpx

September Issue UK

Lífið Mitt

Breska september issue-ið af Vogue er mætt í Eymundsson. Ég sat um starfsmennina sem voru að ganga frá nýju tímaritasendingunni núna í morgun og greip eintak um leið og færi gafst :)

Ég var nú reyndar að vona að þetta væri það bandaríska en það kemur bráðum. Almennt er ég reyndar hrifnari af breskum tímaritum heldur en bandarísku en ég kaupi alltaf bandaríska september issue-ið – eins og ábyggilega allir aðrir tískuunnendur ;)

Það breska er þó góð upphitun fyrir það sem koma skal í haust og þar er farið vel yfir öll trendin. Ég er að vinna í umfjöllunum um makeup trendin fyrir haustið. Virkilega skemmtilegar áherslur framundan í haustförðuninni!

EH

Cara fyrir YSL

Skrifa Innlegg