fbpx

Cara fyrir YSL

FashionFyrirsæturmakeupMakeup ArtistMaskararNýjungar í SnyrtivöruheiminumNýtt í snyrtibuddunni minniYSL

Það má án efa segja að Cara Delevnigne sé ein af eftirsóttustu fyrirsætum heims. Þessi fallega unga kona sem fangaði 21 árs afmæli sínu í vikunni er áberandi í mörgum auglýsingaherferðum þessa stundina. Það er svo sem ekki skrítið því hún sjálf vekur svo mikla athygli – sem nýtist auglýsendum;)

Hún situr fyrir í nýrri herferð fyrir snyrtivörumerkið Yves Saint Laurent – Yves nafnið er ennþá inni hjá snyrtivörunum;). Herferðin er til að kynna nýjan maskara – Babydoll. Ég fékk 2 skemmtilega liti af maskaranum, bláan og fjólubláan til að sýna ykkur í tengslum við umfjallanirnar mínar um litaða maskara. Ég er ýkt spennt að prófa þá almennilega, sérstaklega eftir að ég sá auglýsinguna sjálfa:

Maskarinn er með gúmmíbursta og kemur í klassískum gylltum umbúðum en babydoll logoið er prentað í bleiku á umbúðirnar. Það fyrsta sem ég tók eftir varðandi maskarann var hvað það var góð lykt af honum. Það hljómar kannski fáránlega en þetta er dáldið skemmtileg tilbreyting frá týpísku lyktinni af möskurum ;)

Sýni ykkur hvernig þeir koma út á næstunni.

EH

"Linda I love you"

Skrifa Innlegg

Skilaboð 1

  1. Andrea Röfn

    14. August 2013

    Haha ég elska lyktina af YSL möskurunum!!