fbpx

Rúllukragar og hælaskór

FashionLífið MittTrend

Mig langar svo ofboðslega mikið í fallega rúllukragapeysu fyrir veturinn – ég hef leitað mér af einhverri sem passar mér núna í tvö ár en aldrei fundið neina sem mér finnst passa mér. Ég fýla þá helst að hafa peysurnar frekar stórar og kragann svolítið mikinn.

Ég sé fyrir mér hið fullkomna dress með fallegu rúllukragapeysunni minni (sem ég held reyndar að sé bara ekki til). En við hana myndi ég annað hvort vera í þröngum buxum eða basic beinum bláum með kannski smá rifum á. Til að fullkomna svo lúkkið myndi ég para hælaskó við dressið.

Að mínu mati hefur það lengjandi áhrif á konu að vera í hælaskóm við rúllukragapeysur. Rúllukraginn lengir hálsinn og hælaskórnir lengja leggina. Svo er bara ákveðin elegans yfir konum sem para svona flíkur saman. Ég tók saman nokkrar myndir til að gefa ykkur smá sýn á það sem ég er að tala um. Þegar ég var að leita að myndunum komst ég að því að dressið sem um ræðir er eins konar signature dress Elinar Kling…

7022b3bdde1616d89d9ee2ecf01dc13b a433190f28c08561e3b83ce7b58b98b5620cdf529c59034bc7db6c3628ce5102 e5e4997e3b5a408e0b7daa5b8f3f0e6c 514fb9f6b0db179488efe66841177066Elin_Kling_Guess_Fredrik_Etoall_2567_low-596x892-1 a4cfd__LEFASHIONBLOGSTREETSTYLEFALLSHORTSPART1ELINKLING2zkAHuQ0BI8-YwnCdcGUzQkb0aQy4G1XJ9JgGqaY75Rk DSC_0213_kleiner 68960ccf4b07e9f356bab94b6d6e4847

Ég held það væri líka bara ofboðslega kósý að eiga góða og hlýja peysu sem ég gæti vafið mig inní á köldum vetrardögum. Ég rakst á eina peysu inní Zöru um daginn sem mér fannst mjög falleg, en ég er sko alveg opin fyrir öllum möguleikum svo ef þið hafið nýlega rekist á flottar stórar rúllukragapeysur megið þið endilega láta mig vita af því.

EH

Kögur í AndreA Boutique

Skrifa Innlegg

5 Skilaboð

  1. Hilrag

    29. November 2013

    mjög sammála – afskaplega elegant og fallegt

    ég er á eina gómsæta frá samsö samsö en hún er því miður löngu búin!

    Hef augun opin fyrir þig ;)

    xx

  2. Thelma

    29. November 2013

    Sjúklega flott Outfit :) sammála því :)

  3. Begga Veigars

    30. November 2013

    Ég keypti í LIndex fyrir rúmri viku síðan! ofsalega flott og ekki verra að hún kostaði 3995 kr! Svo tók ég hana númeri stærri svo hún væri meira kósí ;)