Mig langar svo ofboðslega mikið í fallega rúllukragapeysu fyrir veturinn – ég hef leitað mér af einhverri sem passar mér núna í tvö ár en aldrei fundið neina sem mér finnst passa mér. Ég fýla þá helst að hafa peysurnar frekar stórar og kragann svolítið mikinn.
Ég sé fyrir mér hið fullkomna dress með fallegu rúllukragapeysunni minni (sem ég held reyndar að sé bara ekki til). En við hana myndi ég annað hvort vera í þröngum buxum eða basic beinum bláum með kannski smá rifum á. Til að fullkomna svo lúkkið myndi ég para hælaskó við dressið.
Að mínu mati hefur það lengjandi áhrif á konu að vera í hælaskóm við rúllukragapeysur. Rúllukraginn lengir hálsinn og hælaskórnir lengja leggina. Svo er bara ákveðin elegans yfir konum sem para svona flíkur saman. Ég tók saman nokkrar myndir til að gefa ykkur smá sýn á það sem ég er að tala um. Þegar ég var að leita að myndunum komst ég að því að dressið sem um ræðir er eins konar signature dress Elinar Kling…
Ég held það væri líka bara ofboðslega kósý að eiga góða og hlýja peysu sem ég gæti vafið mig inní á köldum vetrardögum. Ég rakst á eina peysu inní Zöru um daginn sem mér fannst mjög falleg, en ég er sko alveg opin fyrir öllum möguleikum svo ef þið hafið nýlega rekist á flottar stórar rúllukragapeysur megið þið endilega láta mig vita af því.
EH
Skrifa Innlegg