Fréttir sem ég veit að mjög margir hafa beðið eftir að fá staðfest, þar á meða ég, er hvort að við munum verða svo heppin að fá eina af línunum sem Rihanna hannaði fyrir snyrtivörumerkið MAC. Þetta hefur nú verið staðfest og línan er væntanleg í lok október eða byrjun nóvember – endilega fylgist með MAC á Facebook HÉR og HÉR til að fá nákvæmari dagsetningu þegar hún kemur.
Hér sjáið þið myndirnar af vörunum sem koma til landsins…
Efst á óskalistanum varaliturinn Talk That Talk sem er mattur dökkur plómulitaður varalitur og varalitablýantinn sem kemur í sama lit. Svo væri gaman að eiga annan kinnalitinn eða tvölfalda púðrið.
Línurnar sem Rihanna hefur verið að hanna fyrir MAC á þessu ári hafa selst upp á örfáum mínútum í Bandaríkjunum en þetta er sú fyrsta sem kemur í sölu hérna og ég efast ekki um að hún muni klárast á no time ;)
EH
Skrifa Innlegg