Jæja! Eins og í fyrra legg ég í leitina að bestu snyrti- og förðunarvörum ársins. Ég er hrikalega spennt að sjá hvað ykkur finnst en eins og í fyrra langar mig að biðja ykkur um að velja eina vöru í eftirfarandi flokkum…
Förðunarvörur…
- Besti farðinn (þar með eru allar tegundir farða, fljótandi, púður, krem…)
- Besti hyljarinn
- Bestu skyggingarvörurnar (t.d. sólarpúður, highlighter)
- Besti kinnaliturinn
- Besti maskarinn
- Besta augabrúnavaran
- Besti eyelinerinn – allar tengundir, blýantar, blautir og gel t.d.
- Bestu augnskuggarnir
- Besti primerinn
- Bestu naglalökkin
- Besti varaliturinn
- Besti glossinn
- Besti varasalvinn
- Bestu förðunarburstarnir
Húðvörur…
- Bestu hreinsivörurnar (má vera hreinsar, andlitsvatn, skrúbbar og jafnvel raftæki sbr. Olay, Clinique og Clarisonic)
- Bestu nærandi kremin (má vera 24h krem, dagkrem eða næturkrem)
- Besta augnkremið
- Besta húðserumið
- Besti húðskrúbburinn
- Besti andlitsmaskinn
- Besta næringin fyrir líkamann
- Besta sjálfbrúnkuvaran
- Besta líkamsnæringin
- Besta ilmvatnið
Hárvörur…
- Bestu hreinsivörurnar (sjampó og næring)
- Bestu mótunarvörurnar
- Besti hármaskinn
- Besta hárolían
- Bestu græjunar (sléttujárn, blásari og krullujárn)
Mig langar að taka fram að þið þurfið alls ekki að tilnefna vörur í öllum flokkum – bara þeim sem ykkur langar og þið þurfið heldur ekki að taka fram nafnið ykkar, tilnefningarnar mega alveg vera nafnlausar.
Eins og í fyrra fara nokkrar skvísur ekki tómhentar frá borði en fjórar þeirra sem taka þátt fá öll gerviaugnhárin hennar Tönyu Burr til að prófa. Samtals eru það 6 týpur af augnhárum sem gætu orðið ykkar. En hér – TANYA BURR AUGNHÁR – getið þið lesið ykkur til um augnhárin, séð sýnikennsluvideo og hárin sem í boði eru. En auðvitað ef þið vinnið þá þurfið þið að skila inn tilnefningum undir nafni nú svo augnhárin komist á rétan stað. Sigurvegarana kynni ég þegar ég loka kosningunni sem verður þá í lok næstu viku.
Ég hlakka mikið til að sjá hvað ykkur finnst en þið hafið heila viku til að skila ykkar tilnefningum inn og svo vinn ég uppúr þeim – spennan magnast en ég er nú þegar búin að tilnefna græjur í öllum flokkum sem ég gef ekki upp – alla vega ekki strax ;)
EH
Skrifa Innlegg