fbpx

Rautt Hár?

Lífið MittLúkkStíllTrend

Í gegnum tíðina hef ég fengið mjög sterkar langanir til þess að lita á mér hárið rautt. Ég hef alltaf verið dökkhærð en alltaf með kaldan dökkan lit, en kannski er spurning að fara að slá til og færa hárið inní hlýjuna.

Rauði liturinn finnst mér passa við svo marga aðra fallega liti eins og dökkgrænan og navy bláan.

Ég held þó að löngun mína í rautt hár sé að rekja til þessarar persónu hér, Línu Langsokk, ég sá ekki sólina fyrir henni þegar ég var lítil og mín heitasta ósk var að fá að vera hún á öskudaginn sem rættist þegar ég var 9 ára – loksins!Ég held líka að lífið væri aðeins einfaldara ef við gætum öll verið eins hamingjusamar og sjálfstæðar eins og Lína kannski orðatiltækið – “blondes have more fun” – sé bara algjört bull. Ég ætla að sjá til hvort að ég láti á það reyna!

EH

Nýtt - Pink&Red frá Bobbi Brown

Skrifa Innlegg

8 Skilaboð

  1. Sunna

    7. February 2013

    Tíhí, ég er sjálf með nokkrar myndir af Taylor Tomasi Hill seifaðar undir heitinu “Mig langar í þetta hár!” Ég hef aldrei verið svo rauð, en einhvern daginn…

  2. Svart á Hvítu

    7. February 2013

    Ég fæ einmitt alltaf rautt hár á heilann af og til… hef nokkrum sinnum verið rauðhærð og var einmitt í gær að lita mig brúnhærða úr rauðu!:) Varð smá fegin að losna við litinn..

  3. Íris Björk

    8. February 2013

    oo mig langar líka svo að prufa ! – tími bara ekki að fórna náttúrulega litnum – ég segi að þú takir one for the teem !

    • Reykjavík Fashion Journal

      8. February 2013

      hehe já það er líka kannski einfaldara fyrir mig að fara bara aftur í dökkt en fyrir þig að fara í ljóst;)

  4. Hilrag

    9. February 2013

    ég held þú yrðir algjör skvísa með rautt hár – do it :) :) :)

    xx