fbpx

Pabbi í framboði

Lífið Mitt

Engar áhyggjur hér er sko enginn kosningaáróður á ferðinni ég er ekki mikið fyrir svoleiðis. Hins vegar þá langar mig alveg óendanlega að deila með ykkur fréttum sem glöddu mig og mína, þá sérstaklega móður mína. Ég held að við trioið – ég, mamma og litli bróðir minn höfum öll andast úr hlátri þegar við sáum þetta. Ekki það að pabbi minn sé ekki óendanlega myndarlegur maður – hann er bara svo ekki þessi týpa þessi elskulegi íþróttakennari sem er með akkurat engan áhuga á útliti og myndi klæðast Arsenal treyju við öll tilefni ef það þætti við hæfi.

Það er dáldið síðan faðir minn fór að væla í mér um að fá færslu tileinkaða sjálfum sér. Helst undir þeim formerkjum að hann væri sá sem mótaði mína tískuvitund – ég veit ekki alveg með það en hér kemur þó færslan um elsku föður minn sem er Laglegur á Lista!!!

Screen Shot 2014-05-26 at 8.52.16 AM photo 4 Screen Shot 2014-05-26 at 8.52.09 AM

Þessi laglegi faðir minn og frambærilegi frambjóðandi skipar 4. sæti á lista VG í Reykjavík – ég vil þakka innilega ristjórn Séð & Heyrt fyrir að hafa hann með en það leikur svo sem enginn vafi á því að hann er myndarlegasti maðurinn í framboði. Þessi síungi maður er líka afi – það trúa því nú fáir:)

Áfram pabbi!

EH

Sýnikennsluvideo: Glær varablýantur

Skrifa Innlegg

Skilaboð 1