fbpx

Örmjór eyeliner!

BourjoisEyelinerLífið MittLúkkmakeupMakeup ArtistSnyrtibuddan mín

Þið sem lesið bloggið mitt reglulega vitið hversu mikið ég dýrka eyelinertússpenna og að ég nota þá nánast eingöngu. Ég hef æ meira verið að taka eftir því að makeup artistarnir sem ég fylgist með á Instagram eru að nota örmjóa blauta eyelinera sem ég hef bara ekki notað í mjög langan tíma. Ég var að gramsa í förðunardótinu mínu um daginn – taka aðeins til og rakst á einn svona eyeliner og ákvað að endurnýja kynni mín á honum.

Mér til mikillar lukku var eyelinerinn eins og nýr, fljótandi, engir klumpar og þetta gekk eins og í sögu.

eyeliner11

Mynd án flassins.

eyeliner8

Mynd með flassi.

eyeliner
Hér sjáið þið gripinn sem geymdist svona vel í allan þennan tíma Liner Pinceau Eyeliner frá Bourjois. Hann er með örfáum stökum hárum á endanum sem ég notaði til að gera línuna. Það kom dáldið mikil formúla í burstann þegar ég tók hann upp og ég tók aðeins úr honum og setti á handabakið áður en ég byrjaði að setja línuna meðfram augnlokunum. Svo nýtt ég bara það sem var á handabakinu mínu til þegar mig vantaði meiri lit í stað þess að setja pensilinn ofan í aftur.

eyeliner5

Af því pensillinn er svo mjór þá var lítið mál að gera línuna og ég nánast dró hana bara alvega út frá innra augnloki til endans á spíssinum. Ég er fyrst til að viðurkenna það núna að ég vanmat blauta linera ég var hreinlega bara búin að gleyma því hversu góðir þeir eru í raun og veru. Þetta var lítið mál frá A-Ö!

eyeliner4

Ég þyrfti endilega að skella í sýnikennslumyndband næst þegar ég tek upp til að sýna ykkur hvernig ég fór að ef það er áhugi fyrir því :)

EH

Annað Dress

Skrifa Innlegg

Hætta við svar

6 Skilaboð

  1. Margrét

    23. June 2014

    Æði. Fer þér líka mjög vel.

  2. Elísabet

    23. June 2014

    Fallegt! Augabrúnirnar líka virkilega fínar!

  3. Hildur

    23. June 2014

    undantekningalaust smitast svona blautir eyeliner alltaf upp á efra augnlokið einhver ráð við því ?

    • Ef þeir eru of blautir – um að gera að passa vel að þeir séu þurrir áður en að þú opnar augun aftur. Mér finnst oft gott að telja uppá 10 :) En ef þú ert með olíumikil augnlok þá er hægt að passa uppá að t.d. púðra augnlokin vel, nota augnskuggaprimer og leyfa honum að þorna það kemur í veg fyrir glans. Annars gerist þetta líka hjá mér af og til oft fer það eftir eyelinerum og gel eyelinerar finnst mér stundum frekar smitast – þessi sem ég nota hér smitaðist ekkert þegar ég var að testa hann :)