Hrekkjavakan er framundan og þar sem ég er nú ekki á leiðinni í neitt hóf – enginn bauð mér í partý búúú… – neinei það er í góðu lagi ;) En mig langaði að því tilefni að gleðja einhverjar skvísur sem langar að klæða neglurnar sínar upp um helgina með lökkum úr nýju línunni frá OPI – Peanuts.
Peanuts línan eða línan sem er innblásin af Smáfólkinu inniheldur fjögur mismunandi lökk – tvo heila liti og tvö yfirlökk. Heilu litirnir eru kolsvartur og gulur. Þetta eru rosalega flottir litir með miklum glans og svarti liturinn er sérstaklega elegant og flottur. Svarti liturinn er auðvitað alveg tímalaus og klassískur en þessi guli er dáldið töff og öðruvísi – hann minni mig dáldið á Simpson fjölskylduna líka. Hann er ekki alveg svona skær eins og á myndinni meira bara extra gulur litur. Yfirlökkin eru svona konfetti lökk og eru flott til að poppa uppá þessa liti já eða bara hvaða liti sem er.
Ég ætla sumsé að gefa tveimur OPI aðdáendum sitthvorn litinn og sitthvort yfirlakkið. Mér finnst svo gaman að gleðja og ég vona innilega að ykkur finnist líka gaman að fá glaðning :)
Það sem þið þurfið að gera er að:
1. Fara inná facebook síðu REYKJAVÍK FASHION JOURNAL og smella á Like
2. Fara inná facebook síðu OPI Á ÍSLANDI og smella á Like
3. Setja like á þessa færslu og skilja eftir komment við færsluna hvorn litinn (svarta eða gula) þið viljið fá. Litirnir af yfirlökkunum sem koma með litunum eru svo þau sem eru við hliðiná litunum rauða og bláa fer með svarta litnum og peach græna er með gula litnum :)
Ég ætla svo að draga á fimmtudagsmorgun svo ég geti vonandi komið naglalökkunum til skila fyrir hrekkjavökuna.
EH
Skrifa Innlegg