fbpx

One Direction sigrar heim snyrtivaranna

Fræga FólkiðIlmirSS14

Nýr ilmur mætir í verslanir í dag – That Moment frá One Direction. Þessir fallegu herramenn eru alveg að slá í gegn í því sem þeir eru að gera – bæði á tónlistarsviðinu og á ilmvatnsmarkaðnum. Our Moment ilmvatnið er búið að vera gríðarlega vinsælt og þegar ég sá að nýr ilmur frá strákunum væri að fara í sölu í dag varð ég að segja frá því því ég veit að það eru margar ungar dömur sem eru ábyggilega spenntar fyrir þessum.

Í kjölfar vinsælda fyrra ilmvatnsins sem kom út í ágúst í fyrra – en eftir fjóra mánuði í sölu komst það á hreint að ilmurinn náði því að vera sá ilmur sem seldist hraðast á síðasta ári. That Moment er mjög svipaður og Our Moment, flaskan er eins í laginu en miðað við lýsingar þá held ég að ilmurinn sé aðeins frískari.

Mér finnst myndin af þeim á kassanum sjúk – fæ smá Bítlafíling frá þeim!o.25775Tónarnir í ilminum eru grænt epli, frískandi gúrka, og sítrusávextir í toppnótunum. Í hjarta ilmsins eru árstíðartengd blóm eins og fjólur. Í grunninum eru sedarviður, patchouli og kremaður musk ilmur.

Ég hvet ykkur til að kíkja á myndbandið hér fyrir ofan þá skiljið þið þessar „slæmu“ myndir hér fyrir neðan ;)

one-direction-that-moment-film-3 one-direction-that-moment-film-8Ef þið eða þið þekkið einhverja skvísu sem er eldheitur aðdáandi One Direction þá megið þið ekki láta þennan fara framhjá ykkur. Síðasti ilmur seldist upp þegar hann kom fyrst til landsins og gjafakassarnir sem komu um jólin ruku út. Fyrri ilmurinn finnst mér æðislegur – ótrúlega góður ég er ekki enn búin að finna þennan nýja en ég hlakka til að prófa hann.

Ég las síðan einhvers staðar um daginn að strákarnir væri að fara að senda frá sér förðunarvörur. Að hver strákur hefði valið lit sem hefði verið gerður í varalit og naglalakki og á umbúðunum væru eiginhandaáritanir þess stráks sem hannaði litinn. Ótrúlegar vinsældirnar í kringum þessa ungu herramenn!

EH

Naglatrend SS2014 - Pastel!

Skrifa Innlegg