fbpx

Omaggio afmælisvasinn

FallegtFyrir HeimiliðStíll

Ég hef sjaldan gerst svo fræg að splæsa í blómavasa til að skreyta heimilið. Einu vasarnir sem finnast á mínu heimili eru ódýrir vasar sem ég hef tekið heim með mér úr nokkurm IKEA ferðum. Núna hef ég þó ekki áhuga á því að nota neinn þeirra því í gær gladdi ég sjálfa mig með dásamlega Omaggio afmælisvasanum frá Kahler.

blómavasi5 blómavasi2blómavasi3 blómavasi

Ég var fljót til að stökkva niðrí Hrím í gær þegar ég fékk póst um að hann væri kominn. Þegar þau í Hrím auglýstu á síðunni sinni að það væri hægt að forpanta vasann ákvað ég að slá til og sendi póst – ég gerði það mjög snemma og stuttu eftir að tilkynningin birtist á samfélagsmiðlum. Ég var ein af fyrstu 40 svo ég fékk einn vasa en ég það eru ábyggilega margir svekktir að hafa ekki fengið einn slíkan. Ég veit nú ekki hvort þeir koma aftur það var ólíklegt þegar ég spurðist fyrir um það í gær en það kemur minni útgáfa af vasanum núna í haust svo fylgist vel með á Instagraminu og Facebook síðu verslunarinnar. Reyndar stendur búðin fyrir leikjum bæði á Instagram og Facebook og ætla í kjölfarið að gefa vasa svo kíkið endilega á það :)

Annars varð ég bara í gær að taka vasann strax upp bara til að njóta hans smá fyrir flutningana sem eru yfirvofandi!! Annars er þvílíkt mikið drasl heima hjá mér og ég sópaði því bara smá til hliðar til að koma fallega vasanum fyrir – já ég er stundum dáldið spes ;)

EH

Catwalk pallettan frá Anastasia B.H.

Skrifa Innlegg

Hætta við svar

4 Skilaboð

  1. Heiðdís

    20. August 2014

    Hann kemur ekki aftur – ss þessi framleiðsla var sú eina (getur vel verið að einhver af íslensku verslununum sem selja Kähler eigi eftir að fá sínar pantanir) en amk þá framleiðir Kähler hann ekki aftur, bara í þessu takmörkuðu upplagi – amk skv Kähler HQ Danmörku, bý í næstu götu við þau og spurði þegar ég sótti minn.
    Mini útgáfan kemur í okt/nóv.

    en fallegur er hann, messing fegurð!

  2. Elísabet Gunnars

    20. August 2014

    Til hamingju með nýja fagra vasann þinn sem ég sá á mörgum myndum á Instagram í dag :)