fbpx

Nýr dökkur litur

Bobbi BrownVarir

Ég er búin að fá endalaust mikið af fyrirspurnum um hvort ég viti um einhvern varalit sem er svipaður Talk That Talk litnum úr haustlínun Rihönnu og MAC. Hér sjáið þið eina tillögu að ótrúlega flottum dökkum varalit frá mér.

Liturinn er frá Bobbi Brown úr Sheer Color línunni og heitir Black Plum. Liturinn er eins og nafnið gefur til kynna mjög léttur en pigmentin eru þó mjög sterki í honum. Ég setti fyrst eina umferð af litnum og prófaði svo að setja aðra umferð til að sjá hvort ég gæti ekki byggt litinn upp sem tókst!

Eftir 1. umferðina:bbvaralitur3 bbvaralitur2Eftir 2. umferð:bbvaralitur5 bbvaralitur4 bbvaraliturVirkilega fallegur og fullkominn berjalitur sem gefur vörunum fallegan glans. Ef þið viljið frekar mattan lit þá er sami litur til í Creamy Matte línunni þið sjáið hann HÉR.

EH

20 merki þess að þú sért förðunarfíkill

Skrifa Innlegg

2 Skilaboð

  1. Marta

    17. November 2013

    Ekkert smá flottur þessi! Má ég spyrja hvað þú ert með til að fylla í augabrúnirnar á þessum myndum? Rosa náttúrulegar og fínar :)

    • Reykjavík Fashion Journal

      17. November 2013

      Auðvitað! Ég er með augnskugga frá Maybelline – Eystudio Mono nr. 740 – mattur og brúnn alveg fullkominn og hræódýr kostar í kringum 1000kr ;)