Ég er búin að fá endalaust mikið af fyrirspurnum um hvort ég viti um einhvern varalit sem er svipaður Talk That Talk litnum úr haustlínun Rihönnu og MAC. Hér sjáið þið eina tillögu að ótrúlega flottum dökkum varalit frá mér.
Liturinn er frá Bobbi Brown úr Sheer Color línunni og heitir Black Plum. Liturinn er eins og nafnið gefur til kynna mjög léttur en pigmentin eru þó mjög sterki í honum. Ég setti fyrst eina umferð af litnum og prófaði svo að setja aðra umferð til að sjá hvort ég gæti ekki byggt litinn upp sem tókst!
Eftir 1. umferðina: Eftir 2. umferð: Virkilega fallegur og fullkominn berjalitur sem gefur vörunum fallegan glans. Ef þið viljið frekar mattan lit þá er sami litur til í Creamy Matte línunni þið sjáið hann HÉR.
EH
Skrifa Innlegg