fbpx

Ný palletta <3

Þið ættuð að kannast við fullkomnu augnskuggapallettuna frá Bobbi Brown sem er seld í öllum flugvélunum – en er ekki fáanleg hér á landi… Mér og eflaust mörgum öðrum til mikillar hamingju þá er loksins komin augnskuggapalletta í sölu hjá merkinu sem er svipuð þeirri pallettu – jafnvel betri.
Ég notaði þessa nýju dásamlegu augnskuggapallettu úr Lilac Rose línunni frá Bobbi Brown fyrir afmælisveislu sem ég fór í í gær. Þetta er fullkomin palletta – litirnir í henni eru svo fallegir, þeir passa allir saman svo það er auðvelt að búa til alls konar fallegar augnfarðanir úr þeim. Ég ákvað að hafa þetta bara einfalt og náttúrulegt og setti ljósasta litinn yfir allt augnlokið (efst til vinstri) og skyggði globuslínuna með ljósbrúna litnum við hliðiná honum. Þannig fékk ég smá dýpt yfir augun án þess að vera of mikið máluð. Ef ykkur líst vel á pallettuna þá hvet ég ykkur til að kíkja á hana sem fyrst því hún kom í mjög takmörkuðu upplagi.

Ég hlakka til að sýna ykkur fleiri farðanir með þessari pallettu og ég held ég noti hana í næstu sýnikennslu – hvort sem það verða myndir eða video ræðst bráðum;)

EH

Bros - besta fegurðarráðið?

Skrifa Innlegg

Skilaboð 1

  1. Íris Tanja

    22. April 2013

    Snilld! Vantar akkúrat eitthvað svona í vinnuna… veistu hvað hún kostar? :)