Josie Maran er amerísk fyrirsæta sem fékk nóg af því hvað förðunarvörur sem voru notaðar á hana í verkefnum höfðu slæm áhrif á húðina hennar. Hún ákvað að taka málin í sínar eigin hendur og á nú eina flottustu no nasties förðunarvörulínuna að mínu mati. Markmið hennar með vörulínunni var að bjóða uppá hágæða förðunarvörur sem væru góðar fyrir alla, bæði okkur og jörðina. Mér finnst þetta frábært markmið og mig langar að bæta við smá texta sem er hægt að finna inná heimasíðu merkisins:
„We’re not perfect, but we’re committed to doing our best. And we’re eager to hear your thoughts, feelings, and dreams about how we might do better.“
No Nasties förðunarvörur eru vörur sem eru 100% náttúrulegar.
Eitt af lykilefnunum í vörunum hennar Josie er 100% hrein Argan Olía. Fyrirtækið hennar Josie er nátengt framleiðslu varanna til að geta tryggt góða framleiðslu og til að geta fylgst vel með henni, allar umbúðir utan um vörurnar eru endurvinnanlegar.
Mig er alltof lengi búið að langa að prófa vörur frá merkinu og loksins lét ég verða af því að kaupa nokkrar til að prófa. Ég keypti farða, olíu og förðunarbursta. Ég keypti líka svartan eyelinertúss en hann er ekki kominn ennþá.
Olían er hrein Argan Olía sem er alveg náttúruleg og inniheldur engin aukaefni. Eins og Josie segir þá er hún gjöf frá náttúrunni. Argan olían er eitt best geymda fegurðarleyndarmál marokóskra kvenna – leyndarmál sem Josie segir að hafi verið hvíslað að sér í fyrirsætuverkefni fyrir 10 árum síðan.
Olían er svo hrein að það má nota hana á börn og líka sem dressingu útá salat!
Olíuna má nota á ýmsa vegu, sem raka fyrir húðina, til að næra naglabönd eða til að næra slitna enda hársins. Ég nota alltaf hárolíu mín uppáhalds er frá Sebastian Professional og ég ætla að halda mig við hana í hárið. Olíuna bar ég því á andlitið í gærkvöldi og ég er ástfangin!! Húðin mín er svo silkimjúk og mér líður svo vel í henni. Þetta er einstök tilfinning sem ég finn alltof sjaldan. Fullkomin fyrir þurra húð. Olían inniheldur ekki heldur nein rotvarnarefni.
Ég keypti líka Argan Matchmaker Serum farða. Josie segir að þegar hún var úti í verkefnum þá dreymdi henni um að finna farða sem myndi ýta undir og fullkomna lit húðarinnar í staðinn fyrir að fela öll einkenni húðarinnar og þar með náttúrulega fegurð kvenna.
Ég hlakka ótrúlega mikið til að bera á mig farðann og ég lofa að segja ykkur hvernig útkoman er. Miðað við hvað ég er ánægð með olíuna þá verður þessi farði snilld – ég finn það á mér.
Með farðanum fylgdi svo flatur förðunarbursti auðvitað með gervihárum og handfangið úr endurunnum viði og stáli.
Ég mæli svo sannarlega með vörunum frá Josie Maran – þessar ættu að fást hér á Íslandi án nokkurs vafa. Vörurnar hennar Josie fást í verslunum Sephora í Bandaríkjunum. Ef þið eigið leið þar um eða þekkið einhvern sem er staddur erlendis þá hvet ég ykkur til að stökkva á þessar vörur. Potið alla vega í þær. Ég er nú þegar orðin húkkt og hlakka til að eignast fleiri. Næst á óskalistanum er maskari, kinnalitir og augnskuggar.
EH
Skrifa Innlegg