fbpx

Næstu dagar…

Lífið MittNýjungar í SnyrtivöruheiminumNýtt í snyrtibuddunni minni

…. munu einkennast af vöruumfjöllunum. Eins og þið sem fylgist með mér á Instagram – @ernahrund – þá hef ég verið að fá haustlínur og nýjungar frá snyrtivörumerkjum. Ég er búin að vera eins og lítið barn í sælgætisbúð og í gær tók ég myndir af ótrúlega mörgum mismunandi förðunarlúkkum þó ég eigi mörg eftir. Inná milli ætla ég þó að gefa mér tíma til að taka upp fleiri vöruumfjallanir þar sem sú síðasta fékk vægast sagt frábærar viðtökur.

Hér sjáið þið smá brot af því sem mun vera til umfjöllunar á síðunni þessa vikuna:

Screen Shot 2013-09-01 at 10.23.50 PM Screen Shot 2013-09-01 at 10.23.00 PM Screen Shot 2013-09-01 at 10.23.27 PM Screen Shot 2013-09-01 at 10.23.16 PM Screen Shot 2013-09-01 at 10.23.33 PM Screen Shot 2013-09-01 at 10.23.08 PM

Ásamt fleiri flottum nýjungum – ég er hrikalega ánægð með snyrtivörumerkin og nýjugnarnar þeirra fyrir haustið. Bæði hjá dýrari merkjunum og þeim ódýrari er mikil af skemmtilegum hlutum í gangi. Haustið verður frábært fyrir förðunarnördana – sérstaklega vegna komu Real Techniques burstanna en það styttist í það að ég megi fara að segja ykkur hvaða burstar verða í boði hér á landi.

Svo var ég jafnvel að pæla í að segja ykkur frá leyniverkefninu mínu eftir næstu helgi – svo ég þarf að vera dugleg að vinna í því núna í vikunni. Hér fyrir neðan sjáið þið brot úr myndatöku sem ég gerði með nokkrum æðislegum skvísum fyrir verkefnið.

Screen Shot 2013-09-01 at 10.23.58 PMCode name: #reykjavikmakeupjournal.

EH

Náðu lúkkinu hennar Cöru

Skrifa Innlegg

Skilaboð 1

  1. Sæunn

    2. September 2013

    Ég býð spennt!