fbpx

MMM x H&M á eBay

Það eru eflaust margir sem eru farnir að koma sér í gírinn til að mæta í H&M í fyrramálið og gæða sér á gómsætri hönnum frá merkinu Maison Martin og Margiela á budduvænu verði. Mig grunar einmitt að Elísabet sé að leggjast með höfuðið á koddann bráðum tilbúin í fjörið í Frakklandi á morgun. Ég ákvað með gamni að sjá hvort línan væri nú ekki mætt á eBay – viti menn þarna var hún svo sannarlega. Ég hugsa nú að þetta hljóti að vera sýnishorn en allt lítur þetta nú út fyrir að vera ekta. Hér sjáið þið smá af því sem er í boði:
Þetta er ein af ástæðunum fyrir því að ég held svona mikið uppá eBay – því maður fær tækifæri til að taka þátt í fjörinu þegar nýr hönnuður fer í samstarf við H&M og þarf ekki einu sinni að fara framúr rúminu til þess!

EH

Makeup Instagrammarar

Skrifa Innlegg

3 Skilaboð

  1. Sirry

    14. November 2012

    Martin Margiela er frábær Belgískur hönnuður :)
    Ég hef átt eitthvað eitt sem hann hannaði held ég

  2. Elísabet Gunn

    15. November 2012

    Neihei. Enn sú snilld. Þú ert alveg ótrúleg. Og keyptir þú eitthvað? Þarf að þjóta ! ;)

    • Reykjavík Fashion Journal

      15. November 2012

      ;) – ekki enn en ég er með augun á samfellunni, bíð samt aðeins held það sé ekki alveg viðeigandi að klæðast henni kasólétt;)