fbpx

Marilyn & Ég

makeup

Það má segja að ég hafi verið ein af þeim heppnu sem náði sér í vörur úr Marilyn línunni frá MAC. Ég var nú reyndar ekkert að drífa mig og kíkti við um fjögur leytið inní Kringlu en ég hefði ekki mátt vera seinna á ferðinni því ég fékk bókstaflega síðasta varalitinn sem var til í línunni. Svo ákvað ég að taka líka einn kinnalit. Umbúðirnar gera vörurnar að sannkölluðum gersemum og ég er ekki frá því að ég líkist henni bara smá;)Ég fékk varalitinn Charmed I’m Sure – hann er dökkrauðbleikur – og kinnaliturinn heitir Legendary – hann er ljós peach litaður og gefur kinnunum voða ferskan lit:)

En ég sé það að ég er allt í einu orðinn voða mikill sukker fyrir rauðum vörum eins og þið sjáið á flotta Trendnet borðanum HÉR – munið að merkja ykkar trendmóment með #trendlight og auðvitað #trendnet líka:):)

EH

Elin Kling á Forsíðu Cover

Skrifa Innlegg

Skilaboð 1

  1. Iris

    25. October 2012

    Ótrúlega fallegur litur á varalitnum.