fbpx

MAN magasín

FashionMyndirStíllTrend

Ég þreytist ekki á því að birta fallegar myndir sem vinkona mín og ljósmyndarinn Íris Björk tekur. Hún hefur svo ótrúlega næmt auga fyrir myndum og er með sterka sýn og skoðanir á því sem hún gerir. Ég dýrka þessa hæfileikaríku stelpu útaf lífinu og hlakka til að sjá myndirnar sem við tókum saman á meðan hún var í heimsókn á landinu í síðustu viku

Hér sjáið þið brot úr myndaþætti sem Íris Björk tók fyrir fyrsta tölublað MAN magasín.Tiskukafli_48-77-1 irisbjorkmanmagasin1 irisbjorkmanmagasin2 irisbjorkmanmagasinextraSjáið meira HÉR

Photography Íris Björk
Styling Sunna Thorsteins
Makeup and hair Margrét Magnusdottir
Model Ola @ Premier Models
Mér finnst förðunin hennar Margrétar líka æðisleg og gaman að fylgjast með þessari hæfileikaríku stelpu sem var alltaf með mér í förðunarnefndunum fyrir nemendamótssýningarnar í Verzló.
Mér bauðst að vera með Írisi í myndatöku fyrir næsta myndaþátt sem hún gerði fyrir MAN en Tinninn minn var veikur svo ég komst ekki. En ég þygg boðið pottþétt næst þegar hún kemur til landsins.
EH

Brúnar neglur

Skrifa Innlegg

3 Skilaboð

  1. Elísabet Gunnars

    7. September 2013

    Falleg birta og stílisering. Læk.