Ég er alveg hrikalega skotin í leikkonunni Lupitu Nyong’o – sérstaklega stílnum hennar á rauða dreglinum undanfarið. Að mínu mati er þessi unga kona að slá í gegn á stóra tjaldinu og sem tískufyrirmynd.
Lupita fer með aukahlutverk í mynni 12 Years a Slave – ég hef ekki enn séð myndina en mig langar mikið að sjá hana. Það eina er að ég veit að það mun taka á að horfa á hana og mjög líklega munu nokkur tár falla en ég mun láta verða af því að horfa á hana fyrir Óskarinn.
Ég tók sama nokkur lúkk frá henni Lupitu á rauða dreglinum en mér finnst alltaf sérstaklega gaman að sjá förðunina hennar. Það er æðislegt hvað hún er óhrædd við að nota sterka og áberandi liti bæði í förðunarvali og klæðaburði.
Konur með dökka húð ættu að vera óhræddar eins og Lupita við sterka liti – þeir fara þeim svo óskaplega vel að mínu mati. Ég er nú þegar orðin spennt að sjá förðunina og klæðnaðinn hennar Lupitu á Óskarsverðlaunahátíðinni en hún er tilnefnd fyrir besta leik í aukahlutverki fyrir mynind 12 Years a Slave.
EH
Skrifa Innlegg