fbpx

Lisa Eldridge yfir hjá Lancome

LancomeMakeup Artist

Það er svo sannarlega heiður þegar maður fær að vera fyrstur með fréttirnar og þegar fréttirnar eru líka af þessari stærðargráðu! En í dag tilkynnti förðunarfræðingurinn Lisa Eldridge sem margar ykkar ættu svo sannarlega að kannast við þar sem hún heldur úti einu vinsælasta bjútíbloggi heims að hún hefði hafið störf hjá hinu dásamlega merki Lancome. Lisa tilkynnti í morgun á Facebook síðunni sinni að hún væri nýr Global Makeup Director hjá Lancome og ég get nú ekki annað sagt en að ég sé dáldið öfundsjúk útí hana Kristjönu vinkonu mína sem er ein af makeup artistum Lancome yfir því að hún fái að fara út eftir ekki svo margar vikur að hitta þessa glæsilegu og hæfileikaríku konu.

Fyrir ykkur sem vitið ekki hver Lisa Eldridge er þá er hún einn vinsælasti og virtasti Youtube förðunarfræðingurinn og hún hefur svo sannarlega skapað sér stórt nafn í þessum stóra heimi. Ef ég væri stödd í London í dag myndi ég svo sannarlega ekki missa af tækifæri til að hitta þessa stórstjörnu en hún mun bjóða uppá one on one kennslustundir fyrir Lancome í Harrods í dag.

lancome-announcement-lisa-eldridge

Bloggið hennar Lisu Eldridge

Lisa Eldridge á Facebook

Lancome Ísland á Facebook

Mikið hlakka ég til að sjá herferðirnar hennar Lisu sem er nú þegar búin að vera að vinna mikið með Lily Collins og Katie Holmes sem eru andlit merkisins – hefði líka átt að gefa okkur smá vísbendingar um það sem koma skal. Ætli við megum ekki vænta einhvers frá henni fyrir Lancome á næstu vikum – ég hlakka svo sannarlega til!

Mér finnst þetta frábært skref hjá Lancome og mun svo sannarlega lyfta merkinu uppá flottan stall og Lisa á eftir að brillera hjá merkinu!

EH

Í Vikunni

Skrifa Innlegg