fbpx

Laugardagslúkk

Annað DressLífið MittOroblu

Ég fékk loksins tilefni til að klæðast þessari skyrtu HÉR í fimmtugsafmæli hjá föðurbróður mínum sem var haldið um helgina – við foreldrarnir skemmtum okkur konunglega á meðan Tinni Snær var í pössun hjá ömmu sinni. Rosalega var gaman að fá að kíkja aðeins út og vera kærustupar – í lok kvöldsins var stiginn trylltur dans sem hefur ekki gerst hjá okkur í langan tíma þar sem það var eiginlega bara ekki hægt á meðan ég var ólétt, kúlan var bara svo fyrirferðamikil – slæmt þegar maður trúlofuð fyrrum atvinnusamkvæmisdansara;)

Skyrta: 9 Líf
Sokkabuxur: Jasmine – Oroblu
Skór: Din Sko

Ég var löngu búin að ákveða dressið sem ég ætlaði að vera í og þegar ég fann ekki sokkabuxurnar sem ég ætlaði að nota þá fór allt í rugl – en undir lokin komu þær í leitirnar en þær höfðu falið sig á bakvið kommóðuna í forstofunni. Þær eru nýju uppáhalds sokkabuxurnar og eru úr sumarlínu Oroblu – finnst þær æði, litirnir eru svo fallegir!

EH

Gullpenninn

Skrifa Innlegg

5 Skilaboð

  1. Jovana

    3. June 2013

    Rosa fín og þú litur ekkert smá vel út. Ertu búin að vera dugleg að hreyfa þig og borða hollt ? kv.

    • Takk! Veistu já ég er að reyna aðeins – þetta er allt að koma og ég hef komist að því að góðir hlutir gerast bara aðeins hægar en ég held :D

  2. Halla

    3. June 2013

    Flott skyrta….

  3. Andrea Rós

    4. June 2013

    fallega þú:*