fbpx

Langar þig í Real Techniques burstana – ég ætla að gefa nokkra!

Real TechniquesReykjavík Makeup Journal

Júbb þið lásuð rétt! Ég ætla núna í vikunni að gefa heppnum lesendum jólaglaðning og þakka ykkur í leiðinni kærlega fyrir frábært ár og þakka ykkur dyggu lesendur fyrir að lesa allt sem ég hef að segja um snyrtivörur;)

Mig langar að gefa nokkrum heppnum lesendum Real Techniques förðunarbursta. Ég ætla að gefa:

  • 2 sett af Starter Set augnskuggaburstasettinu
  • 2 sett af Cor Collection sem er farðaburstasettið með varalitapenslinum.
  • 2 staka Expert Face bursta
  • 2 staka Powder bursta

Real Techniques burstarnir mínir eru í langmestu uppáhaldi af öllum burstunum sem ég á. Ég á sirka 3-4 af öllum burstunum og mér finnst það eiginlega ekki nóg. En ég get huggað mig og jafnvel fleiri við það að það er stöðugt verið að þróa þetta merki og nú þegar eru uppi orðrómar um skemmtilegar nýjungar á næsta ári. Þetta eru reyndar engir orðrómar, ég er búin að sjá nýjungarnar og ég er mega spennt að fá að vita hverjar eru væntanlegar til landsins. Ég lofa að leyfa ykkur að fylgjast með.

En hvernig ætli þið getið átt kost á því að eignast þessa bursta sem ég ætla að gefa – scrollið aðeins lengra niður á síðuna….

Það sem þið þurfið að gera er að fara inná Facebook síðuna mína og finna mynd af Real Techniques förðunarburstunum sem þið finnið HÉR eða á Facebook undir Reykjavík Fashion Journal – myndin á að vera efst á síðunni. Smellið einu kommenti við myndina og segið mér frá því hvaða umfjöllun ykkur fannst skemmtilegust í nýútkomnu 2. tbl Reykjavík Makeup Journal sem þið finnið HÉR eða á reykjavikmakeupjournal.is

Ég dreg svo vinningshafana út á miðvikudag eða fimmtudag – svo þeir berist nú til vinningshafana fyrir hátíðirnar eða alla vega fyrir áramótin ;)

Hljómar þetta ekki bara dáldið vel?

EH

Glimmereyeliner fyrir kvöldið

Skrifa Innlegg

2 Skilaboð

  1. Erla

    16. December 2013

    jú þetta hljómar svakalega vel.

  2. Silja M Stefáns

    16. December 2013

    Hljómar ótrúlega vel og til hamingju með glæsilegt blað! :)