fbpx

La Vie en Rose

DiorFræga FólkiðIlmir

Tískuhúsið Christian Dior fékk leikstjórann Sofiu Coppola til liðs við sig til að gera auglýsingaherferðina fyrir nýjasta Miss Dior ilminn. Natalie Portman finnst mér hin fullkomna Miss Dior – hún smellpassar í hlutverkið hún er svo pen, fín og elegant svona svolítið eins og merkið sjálft.

Síðustu daga hafa birst á netinu stiklur úr auglýsingunni og af því sem er að gerast á bakvið tjöldin. Af því sem ég hef séð verður þetta mjög flott auglýsing og ég hálföfunda leikkonunum fyrir að fá að vera Miss Dior. Ég veit ekki með ykkur en ég væri alveg til í að klæðast kjólum frá Dior, leika mér í gosbrunni og daðra við myndarlegan mann – helst unnustann – í vinnunni.

Hér fyrir neðan er svo nýjasti teaserinn – auglýsingin verður í heild sinni sýnd 24. febrúar HÉR getið þið fylgst með framvindu mála…

Ilmurinn kemur svo vonandi í vor til landsins:)

EH

Sýnikennsla - Ombre Varir!

Skrifa Innlegg

2 Skilaboð