fbpx

Hunkydory SS13

Ég Mæli MeðFallegtFashion

Það yljar manni nú aðeins í desember kuldanum að skoða myndir af fallegum sumarflíkum. Ég get líka ekki annað en hlakka mikið til sumarsins því við fjölskyldan litla ætlum að reyna að eyða sem mestum tíma saman – svo þegar ég skoða sumarlínurnar þá sé ég mig fyrir mér í þessum fallegu flíkum að spóka mig um bæinn með fína barnavagninn!

Hunkydory er sænskt merki sem var stofnað 1996 og er eitt af fyrstu sænsku merkjunum sem var selt fyrir utan Svíþjóð. Merkið leggur mikið uppúr prjónafatnaði sem er alltaf áberandi í línunum þeirra þó svo merkið bjóði uppá allar tegundir af fatnaði. Flíkurnar eru í þessum ekta skandinavíska kvenlega stíl með smá sport fíling og ég er mjög hrifin af því sem ég er búin að sjá núna. Hér sjáið þið myndir af sumarlínunni þeirra.

Ferlega flottar myndir!

EH

Listakonan Rakel Tómasdóttir

Skrifa Innlegg

2 Skilaboð

  1. Heida

    7. December 2012

    Sæl…mig langaði að spyrja hvort þú getir nefnt einhver góðar netverslanir með snyrtivörur (sem selja til íslands helst:)
    Bestu kveðjur
    Heiða