Ísland er í aðalhlutverki í nýrri herferð frá snyrtivörumerkinu Shiseido. Shiseido er japanskt snyrtivörumerki sem er þekkt fyrir virkilega vandaðar vörur. Merkið er ábyggilega þekktast meðal kvenna en nýjasta uppátæki merkisins ætti þó að vekja athygli íslenskra karlmanna þar sem fallega landslagið okkar er í aðahlutverki.
Fyrir nýja herferð fyrir herrasnyrtivörurnar leituðu þeir hjá Shiseido til ljósmyndara sem heitir Guido Mocafico sem er víst heillaður af fallega landinu okkar. Leið ljósmyndarans lá uppá jökul – ég er ekki alveg með á hreinu hvaða jökul – þar sem hann lét sig síga ofan í sprungu og skaut þessa ótrúlega fallegu mynd fyrir merkið og reyndar nokkrar fleiri.
Hér sjáið þið myndband sem sýnir á bakvið tjöldin við gerð herferðarinnar. Ef einhver ykkar spottar hvaða jökull þetta er megið þið endilega setja það í athugasemd. Mér dettur helst í hug Vatnajökull en ég hef aldrei verið sterk í landafræði…
“Pushing back the limits of science and those of men… In order to express these new concerns addressed by Total Revitalizer Eye and Total Revitalizer, Iceland seemed to me to be the ideal landscape to embody the exploration of these new territories”
– Guido Mocafico – Photographer
Skrifa Innlegg