fbpx

Hátíðarneglur #6 – öðruvísi neglur

JólagjafahugmyndirMake Up StoreMakeup Artistneglur

Hátíðarneglur þessa dags eru kannski ekki alveg allra –  þær eru reyndar svaka mikið ég en ég er mikið með dökka liti á nöglunum dags daglega. Þessar henta kannski líka meira sem áramótaneglur en jólaneglur:)neglur2

Make Up Store – Erik, Glossy nr. 301

neglur

Make Up Store – Faisal, metallic nr. 301

Mér finnst svona hologram áferð á naglalökkum sjúklega skemmtileg. Ég á einmitt einhvers staðar heima svona hologram yfirlakk sem ég þarf endilega að finna einhver tíman við tækifæri. Það er svo gaman að sjá hvernig litirnir á nöglunum geta breyst eftir því hvernig birta skín á neglurnar. Bæði lökkin eru úr línu frá Make Up Store sem nefnist Tattoo og kom núna í haust. Það er að sjálfsögðu fullt af alls konar fínum naglalökkum til í Make Up Store og þau eru bara þokkalega góð og með góða endingu.

Aðeins öðruvísi en glimmerið og rauðu neglurnar sem eru búnar að einkenna síðustu hátíðarfærslur;)

EH

 

Trendnetbloggarar með fatamarkað á KEXinu

Skrifa Innlegg