Jæja þá er hún loksins mætt í verslanir jólalínan frá OPI sem ég er búin að vera að slefa yfir síðan ég fékk litaspjaldið með testerum af lökkunum í línunni.
Samtals eru þetta 18 mismunandi naglalökk og þar af eru 6 litir í Liquid Sand lökkunum sem ég er svo ótrúlega hrifin af. Ég fékk að testa nokkra liti og þar af fékk ég mini sett pakkann úr línunni sem inniheldur þrjú mini Liquid Sand naglalökk. Þetta eru ótrúlega krúttleg og sæt naglalökk sem er sniðugt að kaupa fyrir þær sem langar í nokkra liti og eru duglega að skipta um þá. Þá vill maður kannski ekki vera að kaupa sér þessi stóru sem maður nær kannski ekki að klára.
Eins og þið sjáið inniheldur kassinn, svart, silfurlitað og blátt naglalakk. Leiðbeiningar sem fylgja með lökkunum segja til um það að fyrst eigi að setja base coat á neglurnar og svo tvær umfeðir af naglalakki. Ég mæli með því að þið setjið alltaf base coat á neglurnar. Yfirborð naglanna verður fallegra og það verndar neglurnar t.d. fyrir því að litur frá naglalökkum festi sig í yfirborði naglanna. Svo finnst mér reyndar alltaf líka auðveldara að taka naglalökk af ef ég er með base coat undir þeim.
Hér sjáið þið prufurnar mínar af þessum þremur litum…
Ég var lang spenntust fyrir að prófa þennan svarta. Ég setti hér fyrir ofan tvær umferðir en ég held ég hefði eiginlega átt að setja eina í viðbót svo liturinn yrði þéttari mér finnst hann heldur glær en það er auðvelt að byggja litinn upp og fljótlegt því Liquid Sand lökkin þorna á örstuttum tíma. Þessi litur heitir Emotions.Silfraði liturinn kemur mjög vel út. Hann er eiginlega tvílitur því inná milli fínu glimmeragnanna eru stærri agnir sem eru líka dekkri en hinar. Liturinn heitir I’ts Frosty Outside.Blái liturinn sló alveg í gegn hjá mér – þessi litur finnst mér æðislegur en kannski er lítið beint hátíðlegt við hann kannski ekki jóla en þessi er flottur fyrir áramótin. Hann er ábyggilega sjúkur við t.d. silfraðan áramótakjól :) En liturinn heitir einmitt Kiss me at Midnight.
Liquid Sand lökkin bera af í þessari línu finnst mér eiginlega en ég á þó eftir að sína ykkur fleiri liti bæði af venjulegu lökkunum og Liquid Sand. Hér sjáið þið skemmtilega samsetta mynd af litunum í línunni :)
Línan mætti í Hagkaup Smáralind í gærkvöldi og er að dreifast á milli verslana þessa stundina :)
EH
Skrifa Innlegg