fbpx

Hátíðarneglur #1

lorealneglur

Fyrir síðustu jól setti ég reglulega inn myndir af þeim varalitum sem ég var að reyna að velja á milli fyrir aðfangadagskvöld. Ég ætla að gera það aftur og stefni að því að birta 3 tillögur í hverri viku. Bæði finnst mér gaman að sjá hvernig litirnir koma út á mér en einnig finnst mér skemmtilegt að geta sýnt ykkur það úrval sem er í boði hér á Íslandi. Hugmyndirnar þurfa ekkert endilega að vera bara fyrir aðfangadag ég ætla eiginlega að breyta þessu í leitina að hátíðarvaralitunum :)

Í ár ætla ég að bæta við hátíðarnöglum. Eins og með varalitina stefni ég að því að birta alla vega 3 tillögur í hverri viku. Hver veit þær gætu sko vel orðið fleiri!!

Hér sjáið þið fyrstu tillöguna mína að hátíðarnöglunum.glimmerneglur glimmerneglur2

Naglalakk: Sequin Explosion – L’Oreal

Mér finnst þetta sjúklega flott naglalakk. Ég setti þónokkrar umferðir af því til að fá svona mikla þekju en þetta tók samt engann tíma. Lakkið sjálft er glært og þornar á örfáum sekúndum svo það er auðvelt að bæta á það. Ég setti svo gel top coat lakk frá L’Oreal yfir neglurnar en ég held það hafi verið mistök ég held að það hefði bara verið meira töff að sleppa yfirlakkinu :)

En ég var smá kvíðin að taka lakkið af, svo kvíðin að ég endaði á því að kroppa lakkið allt af mér á no time án þess að taka beint eftir því svo því miður þá veit ég ekki alveg hvernig það gengur fyrir sig ;)

Þetta lakk er líka mega flott sem yfirlakk held ég.

EH

Heimföndur - Aðventukransinn minn

Skrifa Innlegg

Skilaboð 1

  1. Rut R.

    2. December 2013

    þetta er massa flott!
    Og öruglega enþá flottara yfir einhvern lit :)