Georgia May Jagger er ein af mínum uppáhalds fyrirsætum það er bara eitthvað við frekjuskarðið hennar sem mér finnst svo skemmtilegt! Mig langar svo í aðeins meira bil á milli minna framtanna en mitt “skarð” er svo lítið að það er varla hægt að kalla það það;)
Georgia sat fyrir í þessum flotta hátíðarmakeup myndaþætti sem birtist í bresku desemberútgáfunni af Glamour. Myndirnar og farðanirnar veita ykkur vonandi innblástur…
Ljósmyndari: Kenneth Willardt
Fyrirsæta: Georgia May Jagger
Stílisti: Alessandra Steinherr
Það fylgdi nú reyndar ekki með myndunum hver makeup artistinn er en það gæti nú verið sú sama og er sett sem stílistinn – ef þið vitið það endilega látið mig vita;)
EH
Skrifa Innlegg