fbpx

Ekki lesa ef þið vitið ekki hvernig síðasti GG endaði….

Fashion

Mig langar að biðja ykkur vinsamlegast um að hætta að lesa ef þið eruð ekki búin að horfa á lokaþáttinn af Gossip Girl. Hér er svo smá bulltexti svo að það komi örugglega ekkert fram í Facebook linkum;)

En það voru tvö atriði sem stálu senunni í þættinum eða eiginlega tveir kjólar sem stálu senunni það voru þessir hér….Blair gifti sig í einstaklega fallegum kjól frá Elie Saab – akkurat svona kjól væri ég til í að gifta mig í – og Serena gifti sig í kjól frá Georges Chakra Couture. Ég var ótrúlega ánægð með endinn og sérstaklega með það hver slúðurskjóðan var það kom skemmtilega á óvart en var án efa mesta snilldin!

Ég ákvað að taka smá maraþon og horfði á alla 6. seríu áður en ég horfði á síðasta þáttinn. Ef ykkur vantar eitthvað að gera milli jóla og nýárs þá gætuð þið gert margt verra en að horfa á smá GG:)

EH

40 vikur - Settur dagur:)

Skrifa Innlegg