fbpx

Fyrir…

Lífið Mitt

Ef það hefur mögulega farið framhjá einhverju ykkar þá vorum við Aðalsteinn að kaupa okkar fyrstu íbúð fyrir stuttu. Ótrúlega spennandi og fullorðins uppátæki sem vatt svo sannarlega uppá sig þar sem mikið þurfti að gera – og sem betur fer þá ákváðum við að gera líka breytingar eins og að taka niður veggi og færa eldhús og þá komu ýmsir leyndir gallar í ljós. Þar af leiðandi tóku breytingar aðeins lengri tíma og sumarið hefur mest megnis farið í að lagfæra íbúðina með hjálp frábærra iðnaðarmanna og yndislegu fjölskyldunni sem við eigum.

Mikið hefur gerst síðan ég tók þessar fyrir myndir til að deila með ykkur. Á morgun eru svo flutningar svo ég verð ábyggilega ekki mikið við hér á síðunni um helgina. Ég vona að þið sjáið möguleikana sem ég sá þegar þið horfið á þessar myndir og mörg ykkar hafa eflaust séð eitthvað af breytingunum inná Instagramminu mínu @ernahrund.

Hér er svo slottið í öllu sínu veldi!

fyrir7

Stofan

fyrir6

Stofan frá sjónarhorninu á móti

fyrir5

 

Eldhúsið

 

fyrir2

Herbergið okkar Aðalsteins

fyrir3

Herbergið okkar Aðalsteins frá öðru sjónarhorni

fyrir

Herbergið hans Tinna Snæs (hér var eldhúsið).

Úff ég get varla horft á þessar myndir og þvílíkar breytingar sem hafa orðið á stuttum tíma. En í svona breytingum er mikilvægt að vera með góða og vana aðila með sér og við vorum svo sannarlega með einhverja af bestu iðnaðarmönnum landsins með okkur í liði.

Hvernig líst ykkur á? – hlakka til að sýna ykkur betur í nánustu framtíð!

EH

Video: haustið frá Yves Saint Laurent

Skrifa Innlegg

4 Skilaboð

  1. telma halldórsd.

    30. August 2014

    Gaman að standa í svona framkvæmdarstússi. Hlakka til að sjá meira!

  2. Helga Eir

    30. August 2014

    Spennandi :-)

  3. guðrún hrönn

    8. January 2015

    hvenær koma “eftir” myndirnar? :)

    • Reykjavík Fashion Journal

      8. January 2015

      úff um leið og allt er til :D Eigum enn eftir að klára smotterí – það stöðvaðist allt um leið og við fluttum inn! :D