fbpx

Förðunin á The Met Gala

FallegtFashionFræga FólkiðmakeupMakeup TipsSS14Trend

Met Gala hátin var haldin í gærkvöldi og því á vel við að fara yfir farðanir stjarnanna sem sóttu hátíðina. Hjá Elísabetu getið þið séð nokkra af kjólunum – mæli með því. Smellið svo einni afmæliskveðju á skvísuna – hún á daginn í dag;)

En eitt af aðaltrendum kvöldsins þegar kemur að förðununum voru gylltir tónar. Gullið er eitt af förðunartrendum sumarsins og það er greinilegt að stjörnurnar eru hrifnar af því. Gloss var einnig áberandi á vörunum – aftur eitt af förðunartrendum sumarsins.

Mér fannst nú bara langflestum stjörnunum takast vel til og þrátt fyrir að það væri ekki beint þema áberandi á hátíðinni í ár eins og í fyrra þegar allir tóku pönk þemað mjög hátíðlega – þá var mikil fjölbreytni í gangi. Sem gerði það að verkum að ég átti mjög erfitt með að velja hvaða farðanir fengju að vera með hér…

beyonce-met-gala-2014-ftr3

Beyonce Knowles

Æðisleg í alla staði – gyllta umgjörðin um augun fer henni ótrúlega vel og liturinn fellur fallega saman við hörundslit hennar. Varaliturinn er æði – ég r svo mikið fan af svona dökkum varalitum.

rihanna-met-gala-2014-ftr

Rihanna

Ekta 90’s förðun hjá Rihönnu þetta kvöld. Elska hvernig augun og varirnar eru látin ljóma með því að setja ljósan sanseraðan lit í augnkrókana og cupids bow.

lea-michele-whiteley-met-gala-2014

Lea Michele

Ofboðslega falleg og ekta glamúrförðun þar sem augun eru í lykilhlutverki.

lupita-nyongo-met-gala-2014-ftr

Lupita Nyong’o

Ahh hér hefði hárbandið mátt missa sig. En aftur elska ég það við Lupitu að hún er alltaf með liti í förðuninni sinni. Fjólublái liturinn fer augunum hennar og hörundstóninum vel en mögulega er brúni liturinn í kjólnum dáldið ruglandi við fjólubláa litinn en hins vegar fer hann græna tóninum velþ

emma-stone-met-gala-2014-ftr

Emma Roberts

Þessi leikkona er í miklu uppáhaldi hjá mér í augnablikinu. Mér finnst hún virka svo ekta alltaf – engin sýndarmennska í gangi. Virkilega falleg og náttúruleg förðun – skemmtileg glimmeráferðin í kringum augun hjá henni.

victoria-beckham-met-gala-2014

Victoria Beckham

Dýrka þessa – kjóllinn er pörfekt og hún skartar sinni signature förðun sem er dökkt smoky með skásettri áferð.

anna-wintour-met-gala-2014

Anna Wintour

Þessi tískudrottning kann sín mörk – hún eða förðunarfræðingur hennar fær stórt hrós frá mér fyrir að nota sanseraða augnskugga! Æðislega falleg húðin hennar líka með þennan bjarta kinnalit sem tónar vel við kjólinn.

chloe-moretz-met-gala-2014

Chloe Moretz

Fullkomið smokey auga og ein flottasta förðun kvöldsins – allt öskrar Chanel!

blake-lively-met-gala-2014-ftrr

Blake Lively

Þessi skvísa er náttúrulega bara bomba í þessum kjól með þetta fallega hár og förðunin er pörfekt! Uppáhalds heildarlúkkið mitt!

jessica-alba-met-gala-2014-ftr

Jessica Alba

Mögulega aðeins of mikið máluð um augun en gæti líka verið bjarta lýsingin á myndinni. Húðin er gjörsamlega lýtalaus en hér er hyljarinn tekinn í þríhyrning undir augunum sem er eitt af nýjustu húðmótunar trendunum.

lema-dunham-met-gala-2014-ftr

Lena Dunham

Ég er að meta þennan rokkarafíling sem förðunin færir leikkonunni. Mér finnst Lena ótrúlega skemmtileg týpa – svart smoky – tattoo og blómakjóll!

marion-cotillard-met-gala-2014-ftrr

Marion Cotillard

Ein af mínum uppáhalds leikkonum og ein fallegast kona heims – að mínu mati. Varirnar eru bjartar og fallegar og sameina eitt af aðalförðunartrendum sumarsins sem er orange varir með glossy áferð!

nicole-richie-met-gala-2014

Nicole Richie

Ég dýrka hárlitinn hennar en ég las einhvers staðar að hún hafi litað það fjólublátt að beiðni dóttur sinnar. Augnförðunin er passleg en vegna þess að Nicole er með mjög stórt og hringlótt augnsvæði hefði verið mjög auðvelt að gera of mikið en gyllti liturinn tónar vel við hörundslit hennar.

michelle-williams-whiteley-met-gala-2014

Michelle Williams

Ofboðslega náttúurleg förðun sem fer Michelle ótrúlega vel. Smellpassar auk þess við kjólinn en ef hún hefði verið meira máluð þá hefði þetta mögulega verið einum of.

rosie-huntington-whiteley-met-gala-2014

Rosie Huntington-Whiteley

 Takið eftir því hvernig eyelinerinn er mótaður í kringum augun hennar og vegna þessa fær hún svona fallega skásetta umgjörð um augun.

alexa-chung-whiteley-met-gala-2014

Alexa Chung

Brún smokey förðun er alltaf klassísk og fer henni Alexu mjög vel. Hún er aldrei mikið máluð og því er passlegt að velja eitthvað svæði í andlitinu til að leggja áherslu á. Brúnir litir eru alltaf fallegir og náttúrulegir þar sem þau falla vel saman við húðtón okkar.

joan-smalls-met-gala-2014-ftr

Joan Smalls

Ó hvað ég elska þennan varalit – hrikalega töff týpa með áberandi varalit. Gyllti liturinn er í aðahlutverki líka hjá Joan en hún er með sanseraðan augnskugga í kringum augun.

Allar æðislegar en Blake Lively, Chloe Moretz og Victoria Beckham standa uppúr hjá mér – hvað segið þið?

Ég þarf síðan endilega að sýna ykkur þetta nýja andlits mótunartrend sem ég nefni undir myndinni hennar Jessicu Alba sem fyrst – það er dáldið skemmtilegt og er svo sannarlega að slá í gegn í förðunarheiminum í dag!

EH

Deitkvöld á Kol

Skrifa Innlegg

4 Skilaboð

  1. Ragnhildur

    6. May 2014

    Blake Lively er langflottust ! vá hvað hún er falleg og fín :)

  2. Ingibjörg

    6. May 2014

    Allt geðveikar farðanir! En þetta er reyndar Emma Stone, ekki Emma Roberts ;)

    • haha eins vandræðalegt og það er fyrir mig þá viðurkenni ég fúslega að þetta er í annað sinn sem ég set inn vitlaust nafn hjá þessari fallegu konu ;D

  3. Rut R.

    7. May 2014

    Mér finnst fjólublái varaliturinn algjörlega geggjaður!!! Fer henni mjög vel :)