fbpx

Fegurð

FallegtFyrir HeimiliðLífið MittTinni & Tumi

Er nokkuð fallegra en kona að gefa barni brjóst – þessa mynd fékk ég frá ömmu minni eftir að ég eignaðist Tinna.Ég man mjög vel eftir henni frá því ég var lítil hún var alltaf á snyrtiborðinu hennar. Hún sagði mér að þegar strákarnir hennir voru nýfæddir þá hafi hún alltaf haft þessa mynd hjá sér þegar hún var að gefa þeim að drekka. Eftir að amma og afi fluttu úr stóra húsinu sínu í minni íbúð var ekki jafn mikið pláss fyrir allar myndirnar þeirra sérstaklega þegar barnabörnum og barnabarnabörnum fór fjölgandi – svo hún ákvað að þessi mynd fengi að fara til mín. Ég tók henni fagnandi og dáist að henni meðan ég gef Tinna litla mjólkina sína.

EH

Tískuvikurnar Nálgast

Skrifa Innlegg

Skilaboð 1

  1. Theodóra Mjöll

    4. February 2013

    vá hvað þetta er yndisleg mynd…