fbpx

Fallegar Naglafilmur

ÁramótÉg Mæli MeðJólagjafahugmyndirlorealneglur

Naglafilmur hafa verið mjög vinsælar undanfarið en því miður hefur mér ekki fundist neitt sérstaklega mikið úrval hérna heima. Þess vegna varð ég mjög spennt þegar ég frétti að það væru 3 mismunandi týpur í jólalínunni frá L’Oreal og ég prófaði þær í dag – ekkert smá einfalt!

Ég prófaði þessar filmur – þær eru nánast alveg gegnsæjar og svo með silfurlituðum doppum. Til að poppa aðeins uppá neglurnar ákvað ég að setja svart naglalakk undir filmurnar fyrst.Filmurnar eru með lími svo það sem þið þurfið að gera er að finna rétta stærð af filmum, líma á neglurnar og þjala síðan filmurnar til þar til þær passa á. Mér finnst þetta fullkomnar áramótaneglur og ég er spennt að sjá hvað þær endast lengi. Það eru komnar 38 vikur í dag hver veit nema ég nái að vera með svona flottar neglur á fæðingadeildinni;)

EH

Fegurð & Skordýr

Skrifa Innlegg

3 Skilaboð

  1. Aðalheiður

    11. December 2012

    Veistu hvar þetta fæst ? :)

      • Aðalheiður

        11. December 2012

        Takk kærlega :)