fbpx

Ég mæli með…

Ég Mæli Með

… að þið „grípið“ ykkur nýjasta tölublaðið af NUDE Magazine HÉR. Blaðið er stútfullt af frábæru efni og ég sit hér með gæsahúð heilluð af myndum af heimili Coco Chanel en Jóhanna ritstjóri NUDE fékk að fara í heimsókn þangað þegar hún var stödd á tískuvikunni í París núna í haust. Ég er búin að bíða spennt eftir að sjá innlitið síðan ég sá að Jóhanna fór þangað. Þetta er einn af mínum draumum að fara þangað í heimsókn sem og til Guerlain og Dior – það mun rætast einhver tíman en fyrst þarf ég bara að koma mér til Parísar.

10645154_10152856669706233_6731578109777296606_n

Í blaðinu finnið þið einnig sjúklega flottan myndaþátt sem ljósmyndarinn Kári Sverris tók fyrir tímaritið og annan sem hin yndislega Íris Dögg tók – Íris á þó fleiri myndir í blaðinu t.d. eina af mér :)

Screen Shot 2014-12-12 at 10.26.40 AM

En hún Rakel Matthea plataði mig til að svara nokkrum spurningum um hátíðarhöld á heimilinu mínu – HÉR – getið þið fundið síðuna mína. Í blaðinu segir líka annar Trendnetingur frá sínum hefðum – þið verðið að kíkja á blaðið til að finna hana.

NUDE MAGAZINE #54

Til hamingju með frábært tölublað kæra ritstjórn NUDE Magazine – þetta er æði!

 EH

Langar þig að prófa birtu?

Skrifa Innlegg