fbpx

Ég hlakka svo til!

FashionFræga Fólkið

Óskarsverðlaunin fara fram í kvöld og ég er orðin mjög spennt að fylgjast með rauða dreglinum, kjólunum og förðuninni á skvísunum í Hollywood!

Hér er mjög skemmtileg teikning sem sýnir kjólana sem allar þær leikkonur sem hafa sigrað í flokknum Besta Leikkonan hafa klæðst á hátíðinni.bisawat5ejxqehel7tm6Það er dáldið gaman að renna yfir þessa mynd og rifja upp í leiðinni þessa fallegu kjóla. Mér finnst líka ótrúlegt að hugsa hvað tíminn er fljótur að líða mér fannst Kate Winslet vinna sína styttu bara í hitt í fyrra… :)

Kjóllinn sem ég er þó spenntust að sjá er kjóllinn sem Lupita mun klæðast. Að mínu mati hefur hún borið af í klæðnaði á verðlaunahátíðunum í ár!

Hvaða kjól eruð þið spenntastar fyrir?

EH

Herferð fyrir vinsælt snyrtivörumerki tekin á Íslandi

Skrifa Innlegg

8 Skilaboð

  1. Kristín

    2. March 2014

    Þetta er kannski heimskuleg spurning en veistu kl hvað hátíðin byrjar að íslenskum tíma? :)

  2. Elísabet Erlendsdóttir

    2. March 2014

    Ég er að deyja úr spenningi yfir Lupitu!! Hún er búin að vera langflottust alla þessa verðlauna-tíð og ég er handviss um að hún muni ekki valda neinum vonbrigðum.. annars hlakka ég líka til að sjá Amy Adams.

    • Sammála langflottust! En Amy er líka alltaf flott svo maður er svo sem líka með væntingar til hennar :D